Íslenski boltinn

Íslandsmeistararnir úr leik eftir tap fyrir Keflavík

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Keflvíkingar eru komnir í undanúrslit Lengjubikarsins.
Keflvíkingar eru komnir í undanúrslit Lengjubikarsins. vísir/pjetur
Keflvíkingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins í fótbolta þegar þeir unnu 4-2 sigur á Íslandsmeisturum FH eftir vítaspyrnukeppni í kvöld.

Staðan eftir 90 mínútur var markalaus og því var farið beint í vítaspyrnukeppni þar sem leikmenn 1. deildarliðsins reyndust sterkari á svellinu.

Bæði lið skoruðu úr fyrstu tveimur spyrnum sínum en í 3. umferðinni varði Beitir Ólafsson frá Þórarni Inga Valdimarssyni á meðan Magnús Þórir Matthíasson skoraði fyrir Keflavík.

Í næstu umferð skaut Jonathan Hendrickx svo framhjá en Bojan Stefán Ljubicic gerði engin mistök og tryggði Keflavík sæti í undanúrslitunum.

Vítaspyrnukeppnin:

0-1 Steven Lennon skorar

1-1 Hörður Sveinsson skorar

1-2 Jeremy Serwy skorar

2-2 Axel Kári Vignisson skorar

2-2 Þórarinn Ingi Valdimarsson varið

3-2 Magnús Þórir Matthíasson skorar

3-2 Jonathan Hendrickx framhjá

4-2 Bojan Stefán Ljubicic skorar


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×