Tónlist

Beyonce og Adele með lag saman á nýrri plötu?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta ætti að verða rosalegt samstarf.
Þetta ætti að verða rosalegt samstarf. vísir/getty
Ný plata með Beyonce kemur út á Tidal á morgun og í almenna dreifingu þann 8. apríl. Svo virðist sem fréttatilkynning sem fyrirhugað var að kæmi út á morgun hafi lekið á netið en þar kemur fram fram að eitt lag á disknum sé í samstarfi við Adele.

Þetta eru líklega tvær vinsælustu söngkonur heims í dag og ætti því að verða magnað dúett. Einnig kemur fram í tilkynningunni að hún hafi tekið upp lög með Kanye West og Mariah Carey á disknum

Twitter-notandinn Queen Will deildi umræddri tilkynningu á samfélagsmiðlinum og hefur sú mynd vakið mikla athygli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×