Golf

Rory sleppir par 3 keppninni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rory McIlroy.
Rory McIlroy. vísir/getty
Norður-Írinn Rory McIlroy hefur ákveðið að sleppa hinni skemmtilegu par 3 keppni sem er upphitun fyrir Masters-mótið.

Par 3 keppnin fer fram á miðvikudeginum eða degi áður en mótið sjálft hefst.

„Þetta mót er of mikið vesen og truflun,“ sagði McIlroy sem sleppti þessu móti síðast árið 2011.

„Það ár átti ég besta möguleika á því að vinna mótið. Ég er því að vona að þessi ákvörðun hjálpi mér.“

Hann hefur unnið fjögur risamót á ferlinum en aldrei tekist að vinna Masters.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×