Húfukollan fær þrenns konar yfirhalningu Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 11. mars 2016 10:00 Guðmundur er að vonum ánægður með afraksturinn en hér skartar hann einni af húfukollunum. Mynd/JúlíaRunólfsdóttir
Leturútgáfan Or Type og 66°Norður frumsýna samstarf sitt í dag á sérstakri opnun en hið síðarnefnda fagnar 90 ára afmæli í ár. Samstarfið er tilkomið sökum HönnunarMars og um er að ræða þrjár nýjar útgáfur af hinni klassísku húfukollu og nýtt letur fyrir fyrirtækið sem einnig verður kynnt við tilefnið. „Húfurnar eru byggðar á 90 ára afmæli og sögu 66°Norður. Ein húfan vísar í gamlar samskiptaleiðir sjómanna, morsið, og svo gerðum við eina sem við köllum „the original“, húfa sem hefði átt að vera fyrsta húfukollan en það stendur Sjóklæðagerðin allan hringinn. Á þriðju húfunni er svo smá orðaleikur með Or, 66 og 90,“ segir Guðmundur Úlfarsson annar hönnuður Or Type en ásamt honum stendur Mads Freund Brunse á bak við útgáfuna. Or Type er sérhæfð leturútgáfa og var opnuð árið 2013 með sýningu á fyrrnefndum HönnunarMars en fyrirtækið er hægt að kynna sér nánar á vefsíðunni Ortype.is.Húfukollurnar koma í þremur útfærslum.Mynd/JúlíaRunólfsdóttirSjálfur hefur Guðmundur, líkt og margir Íslendingar, skartað húfukollu á ákveðnum tímapunkti lífs síns. „Ég á eina barnahúfu sem ég var mikið með fyrir nokkrum árum og svo lagði ég hana á hilluna. Þegar ég ætlaði svo að fá mér nýja þá voru allar aðeins of stórar á mig þannig að við minnkuðum þær aðeins,“ segir hann glaður í bragði. „Ég er mjög ánægður með að vera búinn að gera nýjar húfur fyrir mig, það er aðallega það,“ grínast hann. Auk nýrrar hönnunar á húfukollunni hannaði Or Type einnig nýtt letur sem nýtt verður í ýmiss konar efni fyrir 66°Norður. „Það vísar í gamalt letur og hefðir en er gert á nútímalegan hátt og passar í dag þó að það vísi svona sterkt í fortíðina.“ Húfurnar koma í takmörkuðu upplagi og hægt verður að berja þær augum auk þess sem hið nýja letur verður kynnt á sérstakri opnun á Skólavörðustíg 12 í dag á milli 17.00 og 19.00.
HönnunarMars Tíska og hönnun Mest lesið Val Kilmer er látinn Lífið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Menning Vill kynlíf en ekki samband Lífið Helgi Björns og Siggi Hall skemmtu sér konunglega Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Upp á svið í háum hælum eftir Osteostrong Lífið samstarf Fleiri fréttir Biður drottninguna að blessa heimilið Krotaði á átta milljón krónu tösku móður sinnar Orðin þrítug og nennir ekkert að pæla í áliti annarra Versace stígur til hliðar eftir áratugastarf Hátísku-Laufey á fremsta bekk í París „Bara gaman þegar fólk er í sjokki yfir okkur“ Enginn nakinn á Óskarnum Sjá meira