Tónlist

Plata og stuttmynd á leiðinni

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Natasha Khan gaf síðast út plötuna The Haunted Man.
Natasha Khan gaf síðast út plötuna The Haunted Man. Vísir/Getty
Breska sönkonan Natasha Khan, sem gefur út tónlist undir nafninu Bat for Lashes, deildi áðan myndbandi við lagið In God‘s House. Það er fyrsta myndbandið sem hún gerir af væntanlegri fjórðu breiðskífu hennar „The Bride“. Nýja platan er væntanleg í júlí.

Sjálf stýrði hún upptökum en á meðan samstarfsmanna hennar má nefna Dan Carey, Head og Simone Felice. Samstíga plötunni er Natasha búin að gera stuttmyndina „I do“ sem frumsýnd verður á Tribeca kvikmyndahátíðinni í apríl. Bæði platan og myndin segja sögu konu sem nýlega hefur misst unnusta sinn í bílslysi. „Brúðurinn“ flýr frá aðstæðum, staðráðin í því að upplifa brúðkaupsferð sína þó svo að hún verði ein á ferð.

Natasha Khan er greinilega mjög frjó þessa daganna því síðastliðin október gaf hún út plötu undir nafninu Sexwitch sem inniheldur allt öðruvísi tónlist en hún hefur verið þekkt fyrir fram til þessa.

Hér má sjá myndbandið;






Fleiri fréttir

Sjá meira


×