Viðskipti erlent

Þota Emirates hóf flug á lengstu núverandi áætlunarleið flugfélags

Atli Ísleifsson skrifar
Airbus A380 .ota Eirbus lenti í Auckland í gær eftir að hafa tekið á loft í Dubai.
Airbus A380 .ota Eirbus lenti í Auckland í gær eftir að hafa tekið á loft í Dubai. Vísir/AFP
Airbus A380 þota flugfélagsins Emirates hefur farið í það sem talin er vera lengsta núverandi áætlunarleið flugfélags í kílómetrum talið.

Vélin flaug um 14.200 kílómetra á leið sinni frá Dubai til Auckland á Nýja-Sjálandi í gær.

Í frétt BBC segir að fyrirfram hafi verið búist við að þetta yrði jafnframt lengsta áætlunarferð farþegaþotu í tíma talið, en þotan lenti nokkru fyrr en áætlað var.

Þotan tók á loft á leið sinni aftur til Dubai klukkan 22:20 að staðartíma í gær og var þá búist við að þotan yrði 17 klukkustundir og 15 mínútur á leiðinni. Ferðin reyndist þó nokkuð styttri, eða 16 klukkustundir og 25 mínútur.

Þó að Airbus A380 hafi flogið fyrstu ferðina á áætlunarleiðinni segir að Boeing 777-200LR verði síðar notuð.

Emirates segir að mikil eftirspurn sé eftir sætum á nýju leiðinni.

Áætlunarleið flugfélagsins Qantas frá Dallas í Bandaríkjunum til Sydney í Ástralíu var áður lengsta áætlunarleiðin sem í boði var, eða um 13.800 kílómetrar.

Uppfært 12:45:

Í fyrstu útgáfu fréttarinnar kom fram að um væri að ræða lengstu áætlunarleið flugfélags í sögunni. Það er rangt. Singapore Airlines flaug á árunum 2004 til 2013 milli Newark flugvallar í New York og Singapúr, eða um 15.300 kílómetra leið. Tók flugferðin að jafnaði um átján og hálfa klukkustund.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×