Íslenski boltinn

Fjölnir vann Þrótt í Lengjubikarnum | Sjáið mörkin úr leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Guðjónsson skoraði í kvöld.
Þórir Guðjónsson skoraði í kvöld. Vísir/Pjetur
Fjölnismenn unnu sinn fyrsta sigur og skoruðu sín fyrstu mörk í Lengjubikarnum í Egilshöllinni í kvöld þegar liðið vann x-x sigur á Þrótti en liðin eru í fjórða riðli í A-deildinni.

Þróttarar bættu sig um fimm mörk frá því í síðasta leik liðanna en það kom þó ekki í veg fyrir tap. Það er ljóst að nýliðar Pepsi-deildarinnar eiga erfitt uppdráttar á undirbúningstímabilinu.

Fjölnir vann nefnilega 8-1 sigur á Þrótti í leik liðanna í Reykjavíkurmótinu á dögunum. Nú héldu Þróttar hreinu fyrsta klukkutímann en fengu síðan á sig tvö mörk.

Daninn Martin Lund Pedersen skoraði fyrra mark Fjölnis á 63. mínútu í sínum fyrsta leik með félaginu og Þórir Guðjónsson innsiglaði sigurinn fimmtán mínútum síðar.

Fjölnismenn höfðu tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í riðlinum á móti FH (0-4) og Leikni (0-1).

Það er hægt að sjá mörk Fjölnismanna í myndböndunum hér fyrir neðan.

Martin Lund Pedersen skorar í sínum fyrsta leik Þórir kemur Fjölni í 2-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×