Ókeypis um helgina 5. mars 2016 10:00 Vel hefur verið mætt á Matarmarkaði Búrsins í gegnum tíðina og fólk látið vel af. HELGA BJÖRNSDÓTTIR
Flestir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi um helgina til að bardúsa enda nóg um að vera á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er verra þegar hægt er að upplifa og njóta án þess að þurfa að taka upp veskið. Hér má sjá helstu viðburði sem verða í gangi í dag og á morgun og frítt er inn á.Maginn mettaður Stærsti matarmarkaður landsins, Matarmarkaður Búrsins, verður haldinn í sjötta sinn í Hörpu í dag og á morgun á milli klukkan ellefu og fimm. Að sögn verður markaðurinn súr, sætur og safaríkur en þar munu yfir 45 framleiðendur koma víðsvegar að hlaðnir ljúfmeti til sölu og smakks. Matur verður í algjöru aðalhlutverki í Hörpu í dag og þar verður matreiðslumaður Food and Fun hátíðarinnar krýndur en hátíðin hefur staðið yfir síðan á miðvikudag og nær hámarki í dag. Keppnin er opin almenningi og allir eru velkomnir til að fylgjast með keppendum undirbúa rétti sína. Margir veitingastaðanna sem taka þátt í Food and Fun verða með fulltrúa í Hörpu og munu þeir bjóða upp á smakk af þeim matseðli sem verður í gangi á hverjum stað í tilefni hátíðarinnar.Bækur krydda lífiðGestum matarhátíðarinnar í Hörpu verður ekki einungis boðið upp á mat heldur verður dagskráin þar krydduð með upplestri og höfundaspjalli á morgun á milli tvö og fjögur. Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Penninn Eymundsson taka höndum saman og bjóða gestum hússins að hlýða á átta rithöfunda spjalla um verk sín við sjónvarpsmanninn Egil Helgason. Þetta verður létt og skemmtilegt spjall og upplestur og gott tækifæri til að sjá hvað er í boði í bókaútgáfu fyrstu mánuði ársins, hitta ný skáld sem eru að stíga fram á ritvöllinn og hlýða á fjölbreyttan upplestur.Ljósmynda- og fermingarsýning Þeir sem hafa fengið sig fullsadda af mat geta kíkt á sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu myndum ársins 2015 sem verður opnuð í dag klukkan þrjú í Perlunni. Á sýningunni eru að þessu sinni 82 myndir sem valdar hafa verið af dómnefnd úr rúmlega níu hundruð myndum 32 blaðaljósmyndara. Fermingarbörn fyrr og síðar gætu haft gaman af því að skoða sýninguna „Í fullorðinna manna tölu“ í Borgarbókasafninu Kringlunni. Á sýningunni má sjá ýmislegt tengt fermingunni eins og fatnað, gjafir, skraut og annað. Auk þess verður brugðið upp fermingarmyndum af rithöfundum sem tengjast hverfinu og orðum þeirra um ferminguna.Háskóladagurinn verður haldinn í dag af öllum háskólum landsins í HÍ, HR og LHÍ.Háskóladagurinn Fyrir þá sem langar að virkja heilasellurnar er tilvalið að kíkja á Háskóladaginn en sjö háskólar landsins kynna yfir fimm hundruð námsbrautir í Háskóla Íslands, Háskóla Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands í dag frá klukkan tólf til fjögur. Fyrir utan að geta kynnt sér allt háskólanám í boði má finna sér ýmislegt til skemmtunar á Háskóladaginn. Meðal annars verður opið hús í Vísindasmiðju HÍ en nú er búið að stækka Vísindasmiðjuna og bæta við myrkraherbergi. Þar verða ljósaleikir, ljósalistir og ljósadýrð. Einnig stendur börnum og unglingum til boða að sækja örnámskeið í tæknilegói, forritun og vefsíðugerð í HR.Fyrir krakkana Krakkarnir geta svo haft meira fyrir stafni á morgun því hægt er að taka þátt í tilraunanámskeiði í tónlistarsköpun fyrir krakka á aldrinum fjögurra til sex ára í Mengi og fara í krakkajóga með leikkonunni og jógakennaranum Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur á Kexi hosteli.
Food and Fun Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Fleiri fréttir Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Sjá meira