Audi S8 Talladega R er 802 hestafla skrímsli Finnur Thorlacius skrifar 8. mars 2016 12:37 Audi S8 Talladega R kemst á 350 km hraða.
Audi S8 er öflugur stór lúxusbíll með 605 hestöfl undir húddinu, en það má allltaf gera betur. Það hefur breytingafyrirtækið MTM gert og er Talladega R útgáfa hans 805 hestöfl og klýfur loftið betur en frumgerðin með allskonar breytingum á ytra byrði hans. Bíllinn er með sömu 4,0 lítra V8 vél eins og frumgerðin en MTM hefur náð að kreista útúr henni auka tvö hundruð hestöfl og tog hans er 945 Nm. Fyrir vikið er hann aðeins 3,1 sekúndu í hundraðið, undir 10 sekúndum í 200 og 29 sekúndur í 300 km hraða. Hámarkshraðinn er 350 km/klst. Frumgerð Audi S8 kostar 115.825 dollara en MTM dregur 242.962 dollara úr veskjum áhugasamra kaupenda, eða ríflega helmingi meira en Audi gerir. Það eru 31,7 milljónir króna. Þennan bíl er MTM að sýna á bílasýningunni í Genf, sem nú stendur yfir. Þar verður hann sýndur við hlið MTM útgáfu Volkswagen Amarok pallbíls með V8 dísilvél sem skilar 410 hestöflum. Sá bíll er ekki ódýr heldur því verðmiðinn sem MTM setur á hann er 199.143 evrur, eða 28,3 milljónir króna. Það er nokkuð hátt verð fyrir VW Amarok pallbíl.
Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent