HEKLA býður til 4X4 bílasýningar Finnur Thorlacius skrifar 9. mars 2016 16:40 Volkswagen Passat Alltrack.
Laugardaginn 12. mars heldur HEKLA 4X4 bílasýningu milli kl. 12 og 16. Allir flottustu og fjórhjóladrifnustu bílarnir frá Volkswagen, Skoda, Mitsubishi og Audi verða í aðalhlutverki en innblástur sýningarinnar er sóttur í útiveru og íslenska náttúru. HEKLA býður fjölbreytt úrval fjórhjóladrifinna ökutækja sem spannar allt frá 300 hestafla Golf R til sportlega pallbílsins L200 frá Mitsubishi. Það verður ævintýralegt um að lítast á sýningunni því auk úrvals fjórhjóladrifinna bíla verður ýmiss búnaður til sýnis sem atorkusamt fólk notar sér til útivistar. HEKLA hefur leitað liðsinnis ýmissa útivistarfyrirtækja og verður með til sýnis hjólhýsi og topptjald frá Víkurverki, skíði og snjóbretti frá Everest, úrval hjóla frá TRI og ýmislegt fleira. „Á 4X4 sýningunni gefst okkur tækifæri til að sýna það breiða úrval sem við höfum upp á að bjóða. Við frumsýnum nýjan Volkswagen Passat Alltrack sem er að sjálfsögðu fjórhjóladrifinn en auk hans verða til sýnis Audi Q7, atvinnubílinn Volkswagen Caravelle, Skoda Superb, Volkswagen Touareg og Mitsubishi Outlander auk fjölda annarra og við hvetjum fólk til að prófa þá. Það verður nóg um að vera í öllum okkar sölum og það ættu allir að komast í réttan gír á sýningunni,“ segir Friðbert Friðbertsson, forstjóri HEKLU, sem býst við skemmtilegri sýningu á laugardaginn. 4X4 sýningin verður haldin í salarkynnum HEKLU við Laugaveg 170 – 174 frá kl. 12 til 16 næstkomandi laugardag.Volkswagen Golf R er fjórhjóladrifinn.Volkswagen Touareg.Mitsubishi L200.Audi Q7.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent