Myndaði kyrralíf í stórborgum Kína og sýnir í Gerðarsafni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 20. febrúar 2016 13:45 Á sýningu Katrínar, Margföld hamingja, eru miklar andstæður, að hennar sögn. Vísir/Stefán
Katrín Elvarsdóttir verður með leiðsögn um myndröð sína Margföld hamingja í Gerðarsafni í Kópavogi á morgun, sunnudag, klukkan 15. Í henni fangar hún kyrralíf í stórborgum því myndirnar eru allar teknar í Peking og Pin Yao í Kína. „Ég valdi hluti í umhverfinu, múrsteina með böndum, punt í glugga og plöntur milli hellna, allt þröng sjónarhorn þannig að ekkert bendir á stórborg. En á sýningunni er líka hljóðverk. Ég tók upp hljóð úti á götu sem skapa miklar andstæður við myndirnar því hljóðheimurinn í stórborgum Kína er erfiður eyrunum.“ Katrín kveðst fyrst hafa farið til Kína ásamt manni sínum árið 2010 að sækja dóttur sem þau voru að ættleiða. „Þá hafði ég aldrei komið til Asíu áður og það var mikil upplifun,“ segir hún og heldur áfram: „Svo var manninum mínum boðið að kenna við háskólann í Peking 2013 og við fórum öll. Árið eftir var mér boðið á stærstu ljósmyndahátíð Kína í Pin Yao og þá var ég ein. Í þeirri ferð fór ég líka til Peking til að ljúka verkefninu því auk sýningarinnar var ég að taka myndir í bók sem Crymogea gaf út og þar eru fleiri myndir.“
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira