Viðskipti erlent

Innkalla gríðarlegt magn Mars og Snickers í Þýskalandi

Atli ísleifsson skrifar
Innköllunin nær til vara með "best fyrir“ dagsetningar 19. júní 2016 til 8. janúar 2017.
Innköllunin nær til vara með "best fyrir“ dagsetningar 19. júní 2016 til 8. janúar 2017. Vísir/Getty
Bandaríski sælgætisframleiðandinn Mars hefur innkallað gríðarlegan fjölda Mars og Snickers-stykkja í 55 ríkjum, þeirra á meðal Þýskalandi og Frakklandi, eftir að plastagnir fundust í einu stykkjanna.

Fyrirtækið hefur einnig innkallað Milky Way Mini og ákveðnar gerðir af Celebrations-kössum.

Í frétt BBC kemur fram að þær vörur sem eru innkallaðar séu með „best fyrir“ dagsetningar 19. júní 2016 til 8. janúar 2017.

Fyrirtækið hefur ekki gefið upp um magnið sem um ræðir, en verksmiðjur fyrirtækisins í Þýskalandi framleiða um tíu milljónir stykkja á hverjum degi.

Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu kemur fram að með innkölluninni vilji fyrirtækið koma í veg fyrir að fólk neyti varanna sem um ræðir. Listi með nákvæmum upplýsingum um vörurnar á að vera til á síðunni www.mars.de en hún liggur niður að svo stöddu.

Ekki er ljóst hvort þetta sé umfangsmesta innköllun í sögu fyrirtæksins.

Uppfært 15:55: 

Gunnar Grétar Gunnarsson, deildarstjóri innflutningsdeildar SS, sem flytur inn umrædd vörumerki til Íslands, segir að SS hafi ekki fengið upplýsingar um að innkönnunin nái til Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×