Tónlist

Bibbi skallaði bróður sinn: Kýldi hann til baka og kastaði í hann rauðvínsflösku

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bræður með smá skap.
Bræður með smá skap. vísir
Snæbjörn Ragnarsson og bróðir hans Baldur Ragnarsson lentu í slagsmálum í Marseille í Frakklandi í byrjun árs 2015. Snæbjörn eða Bibbi eins og hann er oft kallaður, skallaði bróður sinn skyndilega í andlitið og brást Baldur illa við. Hann kastaði rauðvínsflösku í Bibba og sló í andlitið.

Uppákoman er ein af mörgum sem verða til umræðu á tónleikum rokkhljómsveitarinnar Skálmaldar í Háskólabíói í kvöld. Snæbjörn og Baldur eru sem kunnugt er í sveitinni og er myndbandið að neðan dæmi um það sem verður í boði í kvöld en tónleikarnir verða í óvenjulegri kantinum.

„Þetta eru tónleikar sem eru aðeins með óhefðbundnu sniði, við erum að fara yfir „leyndóin“ ef svo má segja. Matti Már verður kynnir og talar við okkur milli laga, við sýnum gamlar myndir, hlustum á gömul demó, segjum sögur og allskonar. Og margt af þessu er vandræðalegt rugl sem við ætluðum aldrei að setja fyrir augu almennings,“ segir Snæbjörn í samtali við Vísi.

Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu en upplýsingar um tónleikana má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×