Fúsi fer til Ítalíu! er undirtitillinn Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 16. febrúar 2016 11:00 "Ég elska tónlist og hef alltaf gert,“ segir Einar sem syngur í Fella- og Hólakirkju annað kvöld. Mynd/Úr einkasafni „
Við ætlum að flytja bæði íslensk og erlend lög og slá á létta strengi inn á milli,“ segir Einar Clausen söngvari glaðlega og á þar við tónleika hans og Arnhildar Valgarðsdóttur, organista í Fella-og Hólakirkju, annað kvöld, miðvikudag. Þeir tilheyra tónleikaröðinni Frjáls eins og fuglinn. „Undirtitill tónleikanna er Fúsi fer til Ítalíu því við verðum með lög Sigfúsar Halldórssonar og ítalska tónlist í bland,“ lýsir Einar. Hann hefur starfað óslitið við tónlist frá árinu 1990 og komið víða fram sem einsöngvari, meðal annars með kórum og hljómsveitum á borð við Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tónleikarnir í Fella-og Hólakirkju hefjast klukkan 20 annað kvöld og standa til um 21.30. Kaffisopi er í hléinu. Aðgangur kostar 2.500 krónur en 1.500 fyrir eldri borgara og öryrkja og ókeypis er fyrir börn. Ekki er posi á staðnum.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira