Viðskipti erlent

Ekkert nema rafræn viðskipti í nýjasta Monopoly

Atli Ísleifsson skrifar
Monopoly Ultimate Banking Edition.
Monopoly Ultimate Banking Edition. Mynd/Hasbro
Peningaseðlarnir kveðja og sérstök kreditkort eru kynnt til sögunnar í nýjustu útgáfu Monopoly-spilsins.

Í frétt Gizmodo segir að kortin séu skönnuð inn í sérstakan kortalesara og er ljóst að nú verður mun erfiðara að svindla með því að lauma einstaka seðli úr bankanum og í peningabunkann sinn.

Með Monopoly Ultimate Banking Edition stígur borðspilið skrefið inn í hið rafræna viðskiptaumhverfi. Leikmenn fá þar kreditkort sem má skanna til að sjá inneignina. Kortið er einnig skannað þegar gata eða fasteign er keypt, eða þá ef maður fær innborgun inn á kortið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem framleiðandinn Hasbro gerir tiltaun til að losna við seðlana úr spilinu. Fyrri tilraunir hafa þó leitt til þess að gangur spilsins hefur orðið hægari þar sem leikmenn hafa sjálfir þurft að reikna saman þá upphæð sem þarf að greiða, slá inn og svo er kortið skannað.

Þurfi leikmaður að greiða öðrum leikmanni leigu þurfa þeir einfaldlega báðir að skanna kreditkortið ásamt fasteignaspilinu og þannig millifæra viðkomandi upphæð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×