Tónlist

Hlustaðu á nýja lagið með Starwalker

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jean-Benoit Dunckel og Barði.
Jean-Benoit Dunckel og Barði. vísir
Fyrsta plata Starwalker, sem nefnist einfaldlega Starwalker er væntanleg þann 1. apríl 2016.

Hljómsveitin samanstendur af frönsku tónlistargoðsögninni Jean-Benoit Dunckel sem er í sveitunum Air, Tomorrow's World og Darkel og Barða Jóhannssyni úr Bang Gang.

Nú hafa þeir félagar gefið út lagið Holidays sem verður á plötunni. Lagið einkennist af léttleika og gleði og má heyra það hér að neðan. 

Lagið hefur nú þegar fengið góða dóma á erlendum síðum á borð við Stereo Gum, Vice og Clash Music.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×