Viðskipti erlent

Tæknin gæti útrýmt fimm milljónum starfa fyrir 2020

Sæunn Gísladóttir skrifar
Vélmenni eru líkleg til að leysa sum almenn störf af hólmi á næstunni, svo sem matargerð.
Vélmenni eru líkleg til að leysa sum almenn störf af hólmi á næstunni, svo sem matargerð. Fréttablaðið/Getty
Allt að fimm milljónir starfa gætu horfið í fimmtán stærstu hagkerfum heims fyrir árið 2020 samkvæmt nýrri skýrslu World Economic Forum sem birt var á mánudaginn. Talið er að tækni, svo sem gervigreind, vélmenni og líftækni gætu leyst störfin af hólmi.

Stjórnunarstörf og almenn skrifstofustörf eru talin í mestri hættu vegna „fjórðu iðnaðarbyltingarinnar“ sem er eitt af aðalumræðuefnunum á World Economic Forum sem fer fram í Davos í Sviss í vikunni.

Hagkerfin fimmtán sem um ræðir ráða 65 prósent af vinnuafli heimsins. Talið er að allt að 7,1 milljón starfa geti tapast í þeim vegna sjálfvirkni. Spáð er að 2,1 milljón nýrra starfa muni skapast í tækni-, margmiðlunar- og þjónustugeirunum í staðinn. Því munu samtals fimm milljón störf tapast.

Klaus Schaw, stofnandi og stjórnarformaður World Eco­nomic Forum, segir að löndin verði að fjárfesta í breytingum á vinnustöðum sínum til að mæta þessari þróun. Annars sé hætta á færri sérhæfðum starfsmönnum, auknu atvinnuleysi og ójöfnuði.

Mikilvægt er að fjárfesta í menntun og þjálfun. Talið er að 65 prósent barna sem hefja grunnskólanám í dag muni vinna störf sem eru ekki enn þá til. Því er framtíðarþjálfun mjög mikilvæg, segir í skýrslunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×