Viðskipti erlent

Mikil uppstokkun hjá Twitter

Samúel Karl Ólason skrifar
Jack Dorsey, forstjóri Twitter.
Jack Dorsey, forstjóri Twitter. Vísir/EPA
Margar fregnir af því að nokkrir af yfirmönnum Twitter hefðu yfirgefið fyrirtækið og jafnvel verið reknir bárust um helgina. Forstjóri fyrirtækisins hefur nú staðfest að fjórir af hæst settu starfsmönnum fyrirtækisins hafi farið. Hins vegar sagði Jack Dorsey að enginn þeirra hafði verið rekinn. Auk þess er talið að stokkað verði upp í stjórn fyrirtækisins.

Fjárfestar Twitter hafa beitt miklum þrýstingi undanfarið á að samfélagsmiðillinn taki breytingum og skili hagnaði.

Fyrsti miðillinn til að vekja athygli á brottförunum um helgina var tæknimiðillinn re/CodeJack Dorsey tísti svo um málið í nótt. Hann sagðist hafa vonast til þess að geta rætt þetta við starfsmenn Twitter, en hann þyrfti að tjá sig vegna fréttanna.



Samkvæmt Wall Street Journal munu tveir aðilar bætast við stjórn Twitter í þessari viku. Þeir eru hins vegar taldir vera tveir af mörgum, því Jack Dorsey setti það sem skilyrði þegar hann var ráðinn aftur til fyrirtækisins að allri stjórninni yrði skipt út.

Dorsey sagði að yfirmennirnir fjórir hefðu allir kosið að yfirgefa Twitter, en þau voru öll ráðin af fyrrverandi forstjóra Twitter, Dick Costolo.

Fyrirtækið var í miklum vandræðum þegar Dorsey tók við í október, eftir miklar mannabreytingar, stefnubreytingar og sí lækkandi hlutabréfaverð. Það fyrsta sem Dorsey gerði var að reka fjölda fólks.

Twitter hefur mistekist að breyta samfélagsmiðli sínum til að laða að fleiri notendur. Ljóst er að það er eitt af markmiðum Dorsey. Að gera Twitter auðveldara í notkun. Nú þegar er búið að skipta favorate-stjörnunni út fyrir like-hjarta og er unnið að því að hækka hámarkslengd tísta úr 140 stöfum í tíu þúsund.

Í dag eru virkir notendur Twitter um 320 milljónir. Fjölgun þeirra hefur gengið hægar en fjárfestar hafa vonast til og tekjuöflun fyrirtækisins hefur einnig ekki staðist væntingar.


Tengdar fréttir

Twitter-sjúkir sakna Twitter sem liggur niðri

Notendur Twitter hafa ekki getað komist inn á samfélagsmiðilinn í morgun og mun tæknilegum örðugleikum vera um að kenna. Vandamálið nær ekki aðeins til Íslands heldur liggur vefurinn niðri um heim allan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×