Sverrir Birgir Sverrisson og Kjartan Þór Þórisson eru eigendur og stofnendur fyrirtækisins en hjá þeim starfar hópur faglærðra þjónustuaðila. Sverrir segir að margir séu óvanir nútíma snjalltækjum og þekki ekki alla möguleika sem í þeim felast.
„Við komum á staðinn og veitum persónulega þjónustu. Ef einhver tæknivandamál eru til staðar þá lögum við þau. Hvort sem þarf að tengja sjónvarpið, tengja það við heimabíó, myndlykil eða tölvu. Þá getum við einnig hengt sjónvarpið upp á vegginn ef beðið er um það og göngum frá öllum tengingum á faglegan hátt,“ útskýrir Sverrir.

„Fyrirtækið hóf störf fyrir skömmu og þegar hefur komið í ljós að mikil eftirspurn er eftir þessari þjónustu. Það eru margir í vandræðum með ýmsar tengingar og einnig að læra hvernig tækin virka. Þessi nýju sjónvörp eru mjög ólík eldri gerðum og tæknivæddari.
Svokallað Smart TV býður upp á ótrúlega mikla möguleika sem gaman er að kunna að nota. Þá eru ýmsir möguleikar með Netflix og síðan að nota sjónvarpið eins og tölvu. Ýmis öpp eru í boði sem fólk getur nýtt sér í sjónvarpinu,“ segir Sverrir og bætir við að þeir kenni fólki einnig að samtengja iPad við sjónvarpið og að nota snjallsímann sem fjarstýringu.
„Við leggjum áherslu á að fólk kunni vel á tækin sín eftir að hafa fengið þjónustu okkar.“
Lækkaðu símreikninginn
„Við lækkum símreikninginn og/eða netið fyrir þig, við finnum út hvaða fjarskiptafyrirtæki hentar þér og/eða fjölskyldu þinni best svo þú getur sparað allt að tugum þúsunda á ári. Við tökum ekkert gjald ef okkur tekst ekki að láta ykkur spara þannig að það er lítil áhætta fyrir neytandann að athuga málið. Við komum fljótt á staðinn, innan tveggja daga, en leggjum áherslu á að koma strax.“
Herra Snjall þjónustar allt höfuðborgarsvæðið. „Við skoðum öll mál sem koma til okkar.“
Hægt er að kynna sér starfsemina á herrasnjall.is og á Facebook-síðunni Herra Snjall. Einnig er hægt að ná í fyrirtækið í síma 779 4999.