Sérstök eftirvænting í loftinu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. janúar 2016 09:45 Stór stund framundan hjá Ragnari sellóleikara, Jónasi Ásgeiri harmonikkuleikara, Heiðdísi Hönnu einsöngvara og Sigríði Hjördísi flautuleikara.
Fjórir ungir, íslenskir einleikarar koma fram með sinfóníunni í kvöld í Eldborgarsal Hörpu. Þeir unnu árlega einleikarakeppni sem hljómsveitin og Listaháskólinn standa fyrir og þetta eru því fyrstu skref þeirra á stóru sviði með atvinnuhljómsveit. Þeir eru Heiðdís Hanna Sigurðardóttir einsöngvari, Sigríður Hjördís Indriðadóttir flautuleikari, Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmonikkuleikari og Ragnar Jónsson sellóleikari. Keppnin er opin tónlistarnemendum á fyrsta háskólastigi, óháð því hvaða tónlistarskóla þeir sækja, og Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ, segir tilganginn þann að styðja við efnilegustu tónlistarnemendurna og gefa á sama tíma áheyrendum tækifæri til að fylgjast með þeim. „Stemningin á tónleikunum er jafnan einstök,“ segir hún og undir það tekur Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar. „Það er óhætt að segja að það sé stór stund þegar vinningshafar keppninnar stíga á svið með hljómsveitinni og alltaf sérstök eftirvænting í loftinu að heyra í nýjum ungum einleikurum,“ segir hún. Fluttir verða þrír einleikskonsertar á tónleikunum, forleikur og aríur.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira