Stolnir bílar seldir til Íslands Finnur Thorlacius skrifar 6. janúar 2016 12:55 Mercedes Benz Sprinter, svipaður þeim sem fjallað er um í fréttinni. Innfellda myndin er af Karsten Meyerdahl og konu hans, sem seldu bílinn sem þeirra eigin eign væri, til Íslands.
Að minnsta kosti þrír bílar er á götunum hérlendis sem danskur athafnamaður að nafni Karsten Meyerdahl hefur selt íslenskum kaupendum, en þeir eru stolnir. Kemur þetta fram á heimasíðu FÍB og er starfsfólk FÍB að kanna hvort bílarnir kunni að vera fleiri. Neytendaþátturinn Kontant í danska ríkissjónvarpinu DR1 hefur undanfarið rakið langan og fjölbreyttan svikaferil þessa danska „athafnamanns“. Karsten þessi hefur m.a. átt í viðskiptum með notaða bíla og selt nokkra þeirra til Íslands. Fréttamaður sjónvarpsstöðvarinnar hefur rakið nákvæmlega feril tveggja þessara bíla, beggja stolinna, sem seldir voru til Íslands. Annar er Mercedes Sprinter sendibíll, hinn Porsche Boxter. Báðir eru nú skráðir hér og á íslenskum skráningarnúmerum. Meyerdahl lagði hins vegar á flótta þegar fréttamenn DR fóru að rannsaka viðskipti hans. Hann dvelur nú í Hvíta-Rússlandi ásamt konu sinni sem er ættuð þaðan og fyrirtæki hans, Eleka Group er í gjaldþrotameðferð. Sjónvarpsþáttur um málið verður sýndur í danska sjónvarpinu annað kvöld.Fyrirtæki í Hveragerði keypti bílinn Annar stolnu bílanna ofannefndu, Mercedes Sprinter sendibíllinn var skráður á Íslandi í september 2014. Hann var þá skráð eign danska kaupleigufyrirtækisins M&M Leasing en fyrirtæki Meyerdahls, Eleka Group með hann á kaupleigu. Engu að síður seldi athafnamaðurinn bílinn íslensku fyrirtæki skráðu í Hveragerði, sem sína eign. Bíllinn fékkst skráður á Íslandi að því er virðist með því að framvísa upprunalegum þýskum skráningarskjölum frá fyrsta eiganda bílsins. Sprinterinn er nú atvinnutæki sendibílstjóra sem var gersamlega ókunnugt um þessa sögu bílsins þar til alveg nýlega. Fréttamaður DR spurðist fyrir um það hjá Samgöngustofu hvernig að skráningu þriggja bíla frá Karsten Meyerdahl hefði verið staðið, þeirra á meðal Sprinter sendibílnum fyrrnefnda. Í svari frá yfirlögfræðingi stofnunarinnar segir að hún hafi eins og skylt er, verið byggð á upprunalegum (original) skráningarskjölum, ýmist dönskum eða þýskum sem skráð væru í svokölluðum Icetra gagnabanka. Það væri hins vegar ekki á ábyrgð íslenskra yfirvalda að rekja eigendaferil bíla umfram þau gögn sem framvísað er við forskráningu.
Mest lesið Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Fékk hláturskast í ræðustól Innlent Minnst þrír latnir í Ísrael og Teheran í ljósum logum Erlent „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Innlent Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Innlent „Það er svo mikið rugl í gangi“ Innlent Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Innlent Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Innlent Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Innlent Brautskráði soninn á síðustu útskriftinni Innlent