Tíu myndir sem verða tíu ára á árinu Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 7. janúar 2016 10:00
CarsPixar sendu frá sér teiknimyndina Cars fyrir rúmum tíu árum síðan, árið 2011 fylgdi svo í kjölfarið myndin Cars 2. Fígúrurnar úr myndinni voru til dæmis framleiddar sem leikföng líkt og oft vill verða með söguhetjur úr kvikmyndum. Teiknaðar voru yfir 43,000 skissur þegar myndin var enn á teikniborðinu.V for Vendetta Kvikmyndin V for Vendetta sem skartar þeim Natalie Portman og Hugo Weaving í aðalhlutverkum féll afar vel í kramið hjá áhorfendum og kvikmyndaáhugafólki. Myndin er byggð á samnefndri myndasögu eftir þá Alan Moore og David Lloyd.Casino Royale Fyrsta Bond myndin þar sem breski leikarinn Daniel Craig fór með hlutverk einkaspæjarans knáa. Fjórða myndin með Craig í hlutverki Bond, Spectre, var frumsýnd í október á síðasta ári. Búið var að gefa út að það yrði síðasta myndin þar sem Craig væri í hlutverki spæjarans en nú ganga þær sögur fjöllum hærra að framleiðendur séu æstir í að fá Craig til þess að skella sér í smókinginn fyrir tuttugustu og fimmtu myndina.The Da Vinci CodeEftir sigurför samnefndrar bókar um heiminn árið 2003 eftir Dan Brown kom út kvikmyndin The Da Vinci Code með þeim Tom Hanks og Audrey Tautou í aðalhlutverkum. Árið 2009 kom út sjálfstætt framhald hennar, Angels and Demons og verður þriðja myndin, Inferno, sem fjallar um ævintýri Roberts Langdon, nú í þriðja sinn í túlkun Hanks, frumsýnd í október á þessu ári. Myndirnar þrjár eru allar byggðar á bókum Brown.The Devil Wears Prada Meryl Streep var gjörsamlega baneitruð í hlutverki sínu í The Devil Wears Prada. Myndin sló óvænt í gegn á sumarmánuðum ársins 2006 í bandaríkjunum og gekk fremur vel í bíóhúsum um heim allan og var Streep lofuð talsvert fyrir framistöðu sína. Til þess að fagna tíu ára afmælinu ætla Twentieth Century Fox að gefa út sérstaka afmælisútgáfu á Blu-ray.Little Miss Sunshine Það muna sjálfsagt margir eftir Abigail Breslin í hlutverki Olive Hoover í kvikmyndinni Little Miss Sunshine. Myndin er dásamlega hugljúf og segir frá Olive sem á sér þann draum heitastan að taka þátt í Little Miss Sunshine barnafegurðarsamkeppninni og fjölskyldulífi hennar sem oft á tíðum er ansi skrautlegt. Myndin var meðal annars tilnefnd til fjögra óskarsverðlauna og skartar auk Breslin þeim Steve Carell og Greg Kinnear í aðalhlutverkum.Borat Það fór svo sannarlega allt á fullt þegar Borat var frumsýnd. Myndin er í mockumentary-stíl og sem skrifuð var og framleidd af Sacha Baron Cohen, sem fór meðal annars með hlutverk Ali G, sem fer með hlutverk Kazakstanska blaðamannsins Borat Sagdiyev sem ferðast í gegnum bandaríkin og tekur samskipti sín við landsmenn upp. Myndin var harðlega gangrýnd og jafnvel bönnuð í mörgum löndum en halaði inn yfir hundrað milljón bandaríkjadala.300 Kvikmyndin 300 með Gerard Buttler í aðalhlutverki var beðið með talsverðri eftirvæntingu en hún segir söguna af bardaga um Thermopylae árið 480 fyrir Krist. Butler fer með hlutverk Leonidas konungs Spartverja sem fór í stríð við 100.000 manna her Grikklands með aðeins 300 Spartverja. Frasinn „This is Sparta“ hefur síðan myndin var sýnd verið talsvert vinsæll í hin ýmsu netgrín.Pan’s Labyrinth Spánsk-mexíkanska fantasíumyndin Pan’s Labyrinth er í senn stórkostlega falleg og ótrúlega óhugnarleg. Myndin var frumsýnd á Cannes og vann til fjölda verðlauna þar á meðal þriggja Óskarsverðlauna og þriggja BAFTA-verðlauna.Step Up Rómantíska dansmyndin Step Up fékk kannski ekki lofsamlega dóma hjá kvikmyndabuffum en unglingar víðsvegar í heiminum voru alsælir með ræmuna. Leikarinn, og íslandsvinurinn, Channing Tatum skaust fram á sjónarsviðið í kjölfar myndarinnar og hafa síðan 2006 verið framleiddar þrjár Step Up myndir þó með öðru leikaraliði en í fyrstu myndinni.
Bíó og sjónvarp Óskarinn Mest lesið Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum Lífið Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Lífið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Lífið Páskakveðjur stjórnmálaflokka: Gervigreind, páskaeggjaleit og Sigmundur með kanínueyru Lífið „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Áskorun Litla hryllingsbúðin kveður á Akureyri Lífið Fleiri fréttir Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp