Danski svindlarinn gerði bróður sinn og tvo samstarfmenn gjaldþrota og skuldar Eimskip Finnur Thorlacius skrifar 8. janúar 2016 16:49 Karten Meyerdahl og hin Hvít-rússneska eiginkona hans en þau eru nú flúin til heimalands hennar. Mercedes Benz Sprinter sendibíll er einn þeirra stolnu bíla sem hann seldi til Íslands.
Í gærkvöldi var sýndur þáttur á dönsku ríkissjónvarpsstöðinni DR1 af danska hrappnum sem selt hefur mörgum Íslendingum stolna bíla og greint var hér frá í fyrradag. Þátturinn heitir Kontant og er neytendaþáttur. Í honum kom fram að Karsten hefur svikið og prettað marga samlanda sína í bílaviðskiptum, meðal annars selt fólki bíla fyrir margar milljónir króna og afhent þá aldrei. Þar kom einnig fram að nokkrir af bílunum sem komnir eru hingað til lands eru frá lítilli bílaleigu sem danski hrappurinn, Karsten Meyerdahl, sagðist ætla að hjálpa að finna viðskiptavini fyrir, en stal bílunum þess í stað og sendi til Íslands. Hann fékk flutning á bílunum hjá Eimskip og skuldar enn fyrir þann flutning. Einnig er rætt við konu sem leigði Karsten íbúð, en Karsten stakk af frá fjögurra mánuða greiðslu leigunnar og sat leigjandinn uppi með skaðann. Þá kemur fram að hann hefur gert tvo fyrrum samstarfsmenn sína gjaldþrota með svikum og eldri bróður sinn einnig. Hann virðist heldur aldrei greiða neina reikninga heldur leggur eignir fram sem tryggingu, en þeim hefur hann iðulega stolið. Fjallað er um enn fleiri pretti hans í þættinum og rætt við einn íslensku eiganda bílanna sem hann seldi hingað til lands, sem og eiganda einnar bílasölu sem falið var að selja þann bíl. Karsten hefur nú flúið frá öllu saman til Hvíta Rússlands eftir að danska sjónvarpið hóf að rekja slóð hans. Þessi þáttur í gær var fyrri þátturinn af tveimur og verður sá seinni í næstu viku.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Stungan leiddi til skurðar Innlent