Ef ég væri Kani Bergur Ebbi Benediktsson skrifar 25. júlí 2015 07:00 Ég horfði á baseball-leik í sjónvarpinu um daginn. Á meðan leikmennirnir hituðu upp og sveifluðu kylfum sínum var „All Along the Watchtower“ með Jimi Hendrix blastað úr hátalarakerfinu á meðan Coors Lite auglýsingar rúlluðu á stórum skjá. Skömmu síðar gengu sjóliðar inn á völlinn haldandi á 800 fermetra bandarískum fána. Þrjár F-14 orrustuþotur flugu yfir og tóku lykkju. Þetta var upptakturinn að þjóðsöngnum sem 40 þúsund manns sungu hástöfum með derhúfurnar þrýstar að brjóstinu. Svo var gert auglýsingahlé og nýir pallbílar frá GM og Ford voru kynntir til sögunnar, 400 hestöfl en kosta samt bara 200 dollara á mánuði í greiðsludreifingu. Svo aftur baseball. Ég veit lítið um baseball en var samt með gæsahúð allan tímann yfir því sem ég sá – af hræðslu fremur en hrifningu. Ég hræðist hvernig manneskja ég væri ef ég væri Kani. Ég sé fyrir mér útgáfu af sjálfum mér þar sem ég er Kani. Líkamlega er ég svipaður. Ég hef sömu menntun og svipaða reynslu. Eini munurinn er að ég á bandarískt vegabréf og er alltaf í kakí-buxum. Ég væri líka með annað orkustig. Líklega gíraður í botn frá morgni til kvölds yfir því einu að vera Kani. Ég myndi byrja daginn á að öskra af gleði og borða svo fimm beyglur og drekka 2 lítra af kaffi. Svo myndi ég setjast upp í átta sílindra loftkældan pallbíl og blasta sjálfshjálparspólum með öskrandi stemnings-predikurum sem myndi gíra mig enn frekar upp. Svo kæmi ég í vinnuna og hrósaði fólki stanslaust í 10 klukkutíma og svo bara heim til að sitja í sófanum í nýju Nike Air Monarch IV strigaskónum mínum, drekka 10-12 Coors lite og horfa á baseball-leik og þakka mínum sæla fyrir að vera Kani. Ég myndi gera allt til að viðhalda þessu: kyssa fánann, senda börnin mín í stríð. Þetta er mín játning. Í þessu felast engin siðferðisskilaboð. Ég veit bara að svona væri ég, ef ég væri Kani. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergur Ebbi Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun