Fanga stemningu sem fólk upplifir Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. júlí 2015 11:45 "Ég gaf út barnabækur í gamla daga, meðal annars Húsdýrin okkar, sem margar kynslóðir þekkja,“ segir Kristján Ingi. Mynd/Úr einkasafni „
Mér finnst hestarnir vera hluti af náttúrunni og ég mynda þá eins og við sjáum þá þegar við ferðumst um landið, við fjölbreyttar aðstæður og í ólíku veðurfari. Ég tek það fram að ég hef lítið vit á hestum en finnst þeir alltaf tignarlegir og hef gaman af að mynda þá,“ segir Kristján Ingi Einarsson ljósmyndari. Þetta er fimmta myndabókin sem Kristján Ingi gefur út frá árinu 2009. Allar eru þær hugsaðar fyrir erlenda ferðamenn og gefnar út á erlendum tungumálum. Sumar eru að koma út í þriðju prentun, svo sem I Was here og Niceland. „Þessar bækur hafa einhvern veginn hitt í mark, bæði fyrir það að brotið á þeim er skemmtilegt og ég hef lagt áherslu á að hafa myndirnar sem eðlilegastar og reynt að fanga stemningu sem fólk upplifir þegar það ferðast um landið. Það er kúnst að missa sig ekki í myndvinnslunni eins og mér finnst sumir detta svolítið í á þessum tölvutímum, þá geta litir orðið óeðlilegir,“ segir Kristján Ingi sem kveðst forðast að hafa fólk á myndum. „Ég vil að landslagið og kyrrðin njóti sín,“ útskýrir hann.„Ég hef lítið vit á hestum en finnst þeir alltaf tignarlegir,“ segir ljósmyndarinn.Mynd/Kristján IngiKristján Ingi kveðst hafa tekið myndir frá því hann var tíu ára og fékk sína fyrstu kassamyndavél. „Ég gaf út barnabækur í gamla daga, meðal annars Húsdýrin okkar sem margar kynslóðir þekkja. Eins gerði ég margar bækur fyrir Námsgagnastofnun en nú í seinni tíð hefur landslagsljósmyndun átt hug minn allan og ég hef snúið mér að útgáfu á landkynningarbókum sem hafa bara gengið vel, I was here og Niceland hafa verið meðal mest seldu bóka í þeim flokki á Íslandi frá því að þær komu út.“
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira