Ómótstæðilegar brúnkur sem koma á friði í heiminum 5. júní 2015 10:30 Algjörlega ómótstæðilegar Daim brúnkur sem bræða menn og annann.
Hafiði einhvern tímann upplifað það að baka eitthvað, smakka það og trúa ekki ykkar eigin bragðlaukum? Trúa ekki að þið, meðal Jónarnir, hafið getað búið eitthvað svona dásamlegt til? Nú, þannig leið mér þegar ég smakkaði þessa brúnku í fyrsta sinn. Ég held í alvörunni að þessi kaka gæti komið á friði í heiminum ef hún bara fengi tækifæri til. Mikilvægt hráefni í þessum unaði er „condensed milk“ sem er sæt mjólk sem minnir meira á karamellusósu en mjólk. Vandamálið með þessa dásemdarmjólk er að hún er alls ekki alltaf til á Íslandi.Daim brúnkur175g dökkt súkkulaði175 g smjör3/4 bolli púðursykur3/4 bolli sykur4 egg1/2 bolli hveiti2msk kakó100g grófsaxað hvítt súkkulaði100g grófsaxað Daim200g „condensed milk“ Hitið ofninn í 170°C. Setjið dökkt súkkulaði og smjör í pott og bræðið saman yfir lágum hita. Þegar það er búið að bráðna og blandast vel saman er potturinn tekinn af hellunni og púðursykri og sykri bætt saman við. Svo eru eggin hrærð vel saman við. Því næst er hveiti og kakó blandað saman við - en ekki of vel. Skellið hvíta súkkulaðinu og Daim-inu í blönduna og hrærið vel saman. Setjið blönduna í kassalaga form. Hitið mjólkina og leyfið henni að sjóða í um 1 til 2 mínútur. Hellið henni yfir og bakið kökuna í 30 til 40 mínútur. Mér finnst þessi best þegar hún er búin að vera inni í ísskáp yfir nóttu. Uppskrift fengin af blaka.is
Eftirréttir Kökur og tertur Súkkulaðikaka Uppskriftir Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið