Hundrað bækur um þúsund fyrstu dagana í styrk Guðrún Ansnes skrifar 23. maí 2015 12:30 Soroptimistaklúbburinn hefur að markmiði að auka lífsgæði kvenna og barna í heiminum. fréttablaðið/ernir „
Gjöfin hefur gríðarlega mikil áhrif fyrir skjólstæðinga okkar, en til Miðstöðvar foreldra og barna leita um hundrað og tuttugu fjölskyldur á hverju einasta ári,“ segir Stefanía Arnardóttir, ein af stofnendum miðstöðvarinnar. Nýlega hlaut miðstöðin, sem einbeitir sér að tengslamyndun verðandi og nýbakaðra foreldra, og barna, styrk frá Soroptimistaklúbbi Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Styrkurinn nam um eitt hundrað eintökum af bókinni 1000 fyrstu dagarnir, barn verður til eftir Sæunni Kjartansdóttur. „Bókin fjallar um þroska og þarfir ungra barna frá meðgöngu að 2ja ára aldri. Í henni eru gefin góð ráð um hvernig foreldrar geta lesið í þarfir sérhvers barns og brugðist við því á viðeigandi hátt. Lögð er áhersla á að hjálpa barninu að takast á við tilfinningar sínar á meðan það hefur hvorki þroska né getu til að skilja þær eða vinna úr þeim,“ útskýrir Stefanía. Bókin hefur verið býsna vinsæl hér á landi og fylgir fast á hæla bókarinnar, Árin sem enginn man, sem Sæunn skrifaði einnig. Segir Stefanía vissulega oft um falið leyndarmál þegar kemur að umræðu um tengslamyndun milli hvítvoðunga og foreldra. „En ég finn fyrir vexti í tilvísunum til okkar og umræðan er að opnast,“ útskýrir hún að lokum.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira