Kýs að hnýta flugur með konum svavar hávarðsson skrifar 21. maí 2015 09:45 Konur geta fjölmennt með eigin tæki og efni í dag og bætt við vopnabúrið. mynd/HvK „
Mér finnst skemmtilegast að kenna konum að hnýta, og vil fá fleiri konur inn í stangaveiðina. Þess vegna legg ég áherslu á námskeið fyrir konur og hef haldið slík námskeið um allan heim,“ segir Hans van Klinken, einn þekktasti veiðiblaðamaður heims, sem dvelur hér á landi. Hann skrifar reglulega pistla sem birtir eru í mörgum helstu miðlum stangaveiðimanna í þremur heimsálfum. Van Klinken er hér á vegum Íslandsdeildar Continental Trout Conservation Fund, félagsskapar sem hefur unnið gott starf við að kynna þær áskoranir sem fylgja veiðum í Þingvallavatni og verndun hins einstaka urriðakyns sem vatnið hefur að geyma, ísaldarurriðans. Hafnfirskum, sem og öðrum, áhugakonum um fluguhnýtingar og fluguveiði, stendur til boða fluguhnýtinganámskeið í húsakynnum Stangveiðifélags Hafnarfjarðar í dag. Áður en námskeiðið hefst heldur Hans stutt erindi um veiðar og umhverfisvernd.
Stangveiði Mest lesið Haustbragur á veiðitölum vikunnar Veiði Kastkeppni á skemmtileikum Veiði 6 punda bleikja úr Úlfljótsvatni Veiði Mikið sótt í 2-3 stanga árnar Veiði Besti tíminn laus í Soginu Veiði Hvað á rjúpa að hanga lengi? Veiði Nýjasti þátturinn af Árbakkanum Veiði Elliðavatn opnar á fimmtudag Veiði Gæsaveiðin fór vel af stað Veiði Veiðimenn þurfa að búa sig vel næstu daga Veiði