Þetta er heilmikil áskorun og spennandi. Viktoría Hermannsdóttir skrifar 20. apríl 2015 08:00 Steinunn Birna
Steinunn Birna Ragnarsdóttir hefur verið ráðin óperustjóri Íslensku óperunnar. Hún tekur við af Stefáni Baldurssyni, sem gegnt hefur starfi óperustjóra síðastliðin átta ár. Fimmtán manns sóttu um stöðuna. Steinunn segist spennt fyrir nýja starfinu. „Þetta er heilmikil áskorun og spennandi. Það besta er að geta haldið áfram að vinna að mótun tónlistarinnar og listarinnar í Hörpu sem hefur átt allan minn hug og hjarta og hverja mínútu síðustu 5 árin,“ segir Steinunn sem gegnt hefur starfi tónlistarstjóra Hörpu frá 2010. Aðspurð hvort hún komi til með að breytta áherslum segir hún: „Það er of snemmt að tala um gagngerar breytingar heldur ætla ég að byggja á þessum góða grunni sem búið er að búa til og auðvitað þróa áfram og inn í nútímann og framtíðina. Eftir þeim væntingum og áherslum sem það býður upp á,“ segir Steinunn. Fleiri breytingar eru hjá Íslensku óperunni en Júlíus Vífill Ingvarsson hefur sagt af sér formennsku í stjórn hennar. Í samtali við Fréttablaðið segir hann það ekki tengjast ráðningu Steinunnar heldur hafi hann verið búinn að upplýsa stjórn um það áður en ljóst var hver yrði ráðinn óperustjóri. Hann hefur setið í stjórn óperunnar frá árinu 1998.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira