Afsprengi aukins jafnréttis Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 18. apríl 2015 09:15 Curver og Hrafnkell Tími Thoroddsen sinna þvottinum. Stilla úr vídeóverki sem sýnt er í Hafnarborg.
Sýningin MENN beinir sjónum að stöðu karla við upphaf 21. aldar og þeim breytingum sem orðið hafa á högum þeirra í ljósi breyttrar stöðu kvenna. Á sýningunni eru verk eftir þá Curver Thoroddsen, Finn Arnar Arnarson, Hlyn Hallsson og Kristin G. Harðarson. Í verkunum takast þeir á við spurningar um stöðu karla innan fjölskyldu, hugmyndir um þátttöku þeirra í heimilislífi, ábyrgð á afkomu og uppeldi barna. Málþing í tengslum við sýninguna verður í dag, laugardag, og hefst klukkan 14. Framsögumenn eru Ingólfur V. Gíslason, Jón Ingvar Kjaran og Árni Matthíasson og auk þeirra taka listamennirnir sem eiga verk á sýningunni þátt í umræðum sem Haukur Ingvarsson rithöfundur stýrir. Eins og að framan greinir er Curver Thoroddsen einn þeirra. „?Þeir eldri munu eflaust velta fyrir sér breyttri stöðu kynjanna eftir að jafnrétti á heimilinu óx fiskur um hrygg en ég er yngstur og eiginlega afsprengi þeirra aðstæðna," segir Curver. „Mitt innlegg í umræðuna verður því bara lýsing á lífi ungra fjölskyldumanna nútímans.?“
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira