Bókmenntir og fræðsla við hvert fótmál Magnús Guðmundsson skrifar 16. apríl 2015 15:00 Ljósmynd Sveinn Þórðarson, frá Blesugróf 1972.
Bókmenntamerkingar á vegum bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur setja í vaxandi mæli skemmtilegan svip á bæinn. Með þeim gefst fólki skemmtilegt tækifæri til þess að kynnast bókmennta- og menningarlegri sögu síns nærumhverfis, fræðast um líf, menningu, bókmenntir og sögu liðinna daga. Næstkomandi laugardag kl. 14 verður afhjúpuð ný bókmenntamerking við Blesugrófina við göngustíginn fyrir neðan Stjörnugróf í Fossvogi. Merkingin er til heiðurs Tryggva Emilssyni rithöfundi og verkamanni sem var á meðal fyrstu íbúa hverfisins.Tryggvi EmilssonÆviminningar Tryggva sem komu út á árunum 1976 til 1979 vöktu á sínum tíma mikla athygli, enda er þar að finna einstaka lýsingu á breytingum frá gamla bændasamfélaginu til nútímans. Tryggvi var jafnframt einn af frumbyggjum í Blesugrófinni á sínum tíma og sá eini sem lýsti uppbyggingu og mannlífi þess hverfis með einstökum hætti og hafa verk Tryggva mikið sögulegt og bókmenntalegt gildi. Forlagið hefur staðið fyrir endurútgáfu á verkum Tryggva. Áður hafa komið út Fátækt fólk og Baráttan um brauðið sem voru á sínum tíma tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Fyrir sunnan er síðasta bókin sem nú er endurútgefin og verður lesið upp úr henni og litið til fortíðar með ættingjum Tryggva við afhjúpun merkingarinnar.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira