Tónaljóð um þjáningu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 2. apríl 2015 11:30 Hanna Dóra og Elmar Gilbertsson sjá um einsönginn á morgun með Mótettukórnum og kammersveitinni. Vísir/Valli ?
Passían hans Hafliða er, frá mínum bæjardyrum séð, meðal merkustu verka af þessu tagi sem íslensk tónskáld hafa skrifað,? segir Hörður Áskelsson, organisti í Hallgrímskirkju, um óratóríuna Passíu op. 28 eftir Hafliða Hallgrímsson. Hún verður flutt í kirkjunni á Skólavörðuholtinu á morgun klukkan 17. Passía var samin í tilefni kristnitökuafmælisins árið 2000 fyrir Hörð og hans kór. „?Hún er okkur dýrmætur hlutur, eitt þeirra verka sem ég er hvað stoltastur af að eiga hlutdeild að,“? segir hann. Frá því passían var frumflutt í febrúar 2001 og hljóðrituð ári síðar, hefur hún aldrei verið flutt opinberlega, að sögn Harðar. Hann furðar sig á því þar sem henni var hrósað mjög í erlendum tónlistartímaritum eftir útgáfu hennar á geisladiski árið 2003. „?Ég tel að verkið eigi erindi út fyrir skerið okkar því tónlistin er mjög mögnuð, þó ekki sé hún auðveld. Tónmálið er ágengt enda fjallar það um píslir og orðið passía er leiðarstef gegnum allt verkið.?“ Hörður segir val Hafliða á stefbrotum úr íslenskum ljóðum eftir Hannes Pétursson, Stein Steinar, Matthías Johannessen og Baldur Óskarsson sterkt og seinni parturinn sé úr Passíusálmum Hallgríms, síðustu orð Krists, sunginn af tenór. „?Það er svolítið leikræn útfærsla, samt ekki óratóría sem segir beinlínis söguna heldur meira tónaljóð um þjáninguna,“? lýsir Hörður. „?Engin skemmtitónlist en mjög grípandi og lætur engan sæmilega lifandi ósnortinn.“?
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira