Segir mergjaðar íslenskar alþýðusögur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 26. mars 2015 13:00 „Mér finnst þessar sögur ágætlega sagðar og skrifaðar og Maurer nefnir heimildarmenn víða,“ segir Steinar. Vísir/Vilhelm „
Það var 1858 sem hingað til lands kom þýskur maður, Konrad Maurer, og ferðaðist um landið heilt sumar, safnaði fróðleik um landshagi og lét fólk segja sér sögur. Heimkominn til Þýskalands skrifaði hann tvær bækur. Ég var að þýða aðra þeirra, Íslenskar alþýðusögur, sem kom út í Þýskalandi 1860 en ekki á íslensku fyrr en núna,“ segir Steinar Matthíasson, leiðsögumaður og þýðandi. Hann ætlar að fjalla nánar um þetta efni á rannsóknarkvöldi á vegum Félags íslenskra fræða í kvöld klukkan 20 í Hannesarholti á Grundarstíg 10, en gengið er inn frá Skálholtsstíg. Steinar segir margar sagnanna þekktar hér á landi, þó alls ekki allar. „Mér finnst þessar sögur ágætlega sagðar og skrifaðar og Maurer nefnir heimildarmenn víða. Maurer skrifar líka í kringum sögurnar og ber þær saman við sögur í sínu heimalandi, “ segir Steinar. Meðal sagna sem ekki hafa birst áður nefnir hann nokkrar mergjaðar um séra Hálfdan Narfason á Felli í Sléttuhlíð í Skagafirði, sem talinn var göldróttur og fjölkunnugur.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira