Harður bransi og auðvelt að kenna öðrum um Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 27. febrúar 2015 13:00 Stórsöngvaranum þykja tæknimál hússins nú ekki merkileg. Mynd/Sigfús Már Pétursson „
Ég hef oft spekúlerað í hvað tenórinn hafi verið að brasa síðustu ár,“ segir Guðmundur Ólafsson leikari sem flutti Tenórinn yfir 70 sinnum frá 2003. Nú frumsýnir hann sjálfstætt framhald í Iðnó annað kvöld klukkan 20. „Tenórinn og undirleikarinn hittast aftur eftir ellefu og hálft ár. Söngvarinn er fluttur heim eftir að hafa sungið í „stóru húsunum“ og er farinn að kenna úti á landi – það er mikil breyting fyrir slíkan mann,“ upplýsir höfundurinn. Hann segir efnið sótt í hinn dæmigerða listamann sem finnist hann ekki fá þá aðdáun og viðurkenningu sem hann eigi skilið. „Þetta er harður bransi og menn vilja stundum kenna öðrum um ef illa gengur, það er dálítið mikið okkar maður,“ segir Guðmundur. Verkið er stútfullt af tónlist, allt frá dægurlögum til óperuaría. Sigursveinn Magnússon er enn hinn geðprúði undirleikari og Aðalbjörg Þóra Árnadóttir er í gervi ungrar velmeinandi konu, er sér um tæknimál hússins sem alheimssöngvaranum þykja nú ekki merkileg. María Sigurðardóttir leikstýrir verkinu.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira