Aðgengilegt fyrir áheyrendur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. febrúar 2015 09:30 Hafnarfjarðarkirkja Básúnutónar munu hljóma í kirkjunni í hádeginu. Fréttablaðið/Valli „
Við erum með ágæta efnisskrá. Á henni er meðal annars hið hið magnaða verk Quartet de forme Liturgique eftir Jacques Charpentier. Það er fallegt og aðgengilegt fyrir áheyrendur en býsna flókið í samsetningu og því talsverð áskorun að spila það,“ segir Stefán Ómar Jakobsson básúnuleikari. Stefán er einn þeirra sem tilheyra kvartettinum Los Trombones trans Atlantico sem spilar á hádegistónleikum í Hafnarfjarðarkirkju í dag, 24. febrúar, milli klukkan 12.15 og 12.45. Stefán nefnir líka verkið Coral sem er eftir annan básúnuleikara kvartettsins, Ingibjörgu Azima, sem einnig spilar í rokksveitunum Smurjóni og Sauðreknum. Kvartettinn Los Trombones trans Atlantico var stofnaður í apríl 2014 af David Bobroff, bassabásúnuleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands og þá er aðeins ónefndur sá fjórði í kvartettinum, það er Carlos Caro Aguilera. Kaffisopi er á könnunni eftir tónleikana í Hafnarfjarðarkirkju og aðgangur er ókeypis.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira