Uppgötvum eitthvað nýtt við hvert fótmál Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 21. febrúar 2015 13:00 Flytjendurnir Una, Hlín og Hrönn hafa notið æfingartímans fyrir Breytilegt ljós og bergmál. „
Það er alltaf ótrúlega spennandi ferli að frumflytja ný tónverk og æfingatíminn nú hefur verið mjög skemmtilegur,“ segir Hlín Pétursdóttir Behrens sópransöngkona þegar forvitnast er um tónleikana Breytilegt ljós og bergmál. Þeir verða í Hafnarborg í Hafnarfirði annað kvöld og þar frumflytja Hlín, Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari og Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari verk eftir tónskáldin Elínu Gunnlaugsdóttur og hina finnsku Kaiju Saariaho. Hlín segir að finna megi fyrir ólíkum efnistökum en líka sameiginlega þræði í verkum þeirra. „Bæði Elín og Kaija vinna af sérstakri natni með ljóðin sem þær velja sér og líka tungumálið sjálft,“ segir hún. „Þegar tónskáldin skrifa af andagift og formið er sterkt þá er frelsið svo mikið og við uppgötvum eitthvað nýtt við hvert fótmál á leiðinni.“ Tónleikarnir verða annað kvöld klukkan 20 og eru hluti af tónleikaröðinni Hljóðön.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira