Fannst Arnarhóll of fjarri miðbænum fyrir Alþingishús Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 19. febrúar 2015 10:45 „Við ákváðum að vera með tvenns konar þema í kvöld,“ segir Guðni Th. Vísir/Anton Brink „
Það er árlegur viðburður hjá okkur sagnfræðingum að setjast niður þegar jólabókaflóðinu hefur slotað og ræða nokkrar vel valdar bækur um liðna tíð,“ segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur um bókafund sem haldinn er í kvöld í Þórunnartúni 2. Annars vegar verður ævisöguþema. „Við völdum bók Gísla Pálssonar um Hans Jónatan og ættarsögudrama Helgu Guðrúnar Johnson, Saga þeirra, saga mín. Höfundarnir stóðu báðir frammi fyrir ögrandi vandamálum,“ segir Guðni Th. Hins vegar verður fjallað um Reykjavík, meðal annars þá sýn á borgarsöguna sem birtist í bókinni Reykjavík sem ekki varð eftir Önnu Dröfn Ágústsdóttur og Guðna Valberg. „Við fáum þar sterkt á tilfinninguna hvað uppbygging er mikið happa- og glappadæmi,“ segir Guðni Th. „Alþingishúsið er meðal annars þar sem það er núna af því Arnarhóll þótti of langt frá miðbænum fyrir húsið og landshöfðinginn þurfti hólinn sem beitiland.“ Í bók Eggerts Þórs Bernharðssonar heitins, Sveitin í sálinni, koma líka sjónarmið fram sem þykja undarleg nú að sögn Guðna Th. „Árið 1947 var sagt að Langholtshverfið og Vogarnir yrðu aldrei hluti af Reykjavík, það væri of fjarlægt. Dæmi um hvað menn sjá skammt inn í framtíðina.“ Allir eru velkomnir á fundinn sem hefst klukkan 20. Aðgangur er ókeypis.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira