Ljóð á hinum ólíklegustu stöðum í Kópavogi næstu daga Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 22. janúar 2015 14:00 Kópavogsskáldið Jón úr Vör prýðir Hamraborgina.
Dagar ljóðsins hófust í gær í Kópavogi og standa til 25. janúar. Við setningu þeirra í Salnum var tilkynnt að enginn hlyti Ljóðstaf Jóns úr Vör að þessu sinni, þar sem ekkert 180 innsendra ljóða uppfyllti gæðakröfur. Þetta er í annað sinn í fjórtán ára sögu ljóðasamkeppninnar sem dómnefnd ákveður að ekkert innsendra ljóða hljóti fyrstu verðlaun. Hins vegar var úthlutað verðlaunum í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs og var Unnur Hlíf Reynisdóttir, nemandi Vatnsendaskóla, þar hlutskörpust fyrir tvö ljóð. Vegfarendur mega eiga von á að rekast á ljóð á hinum ólíklegustu stöðum í Kópavogi næstu daga, í sundi og strætó, á vefsíðum og við verslunarkjarna. Ljóð fást gefins í Bókasafni Kópavogs og víða um bæ poppar ljóðalestur upp. Höfundur vikunnar á Bókasafni Kópavogs er Gerður Kristný skáld. Gestum safnsins býðst að spreyta sig á að blanda saman þekktum ljóðlínum á ljóðavegg og mynda þar með sitt eigið ljóð.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira