Ljúfir tónar, te og kaffi í Salnum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. janúar 2015 09:00 Hörpuleikarinn Elísabet Waage er í Kársnestríóinu sem kemur fram í Salnum. „
Mildir og ljúfir tónar Kársnestríósins munu leiða okkur inn í nýja árið,“ segir í fréttatilkynningu frá Salnum í Kópavogi. Þar er vísað til hádegistónleika sem eru á dagskránni þar í dag, miðvikudag, og hefjast klukkan 12.15. Tríóið skipa þær Guðrún Birgisdóttir á flautu, Elísabet Waage á hörpu og Svava Bernharðsdóttir á víólu. Á efnisskránni eru verkin Dans góðu andanna úr óperunni Orfeus og Evridís eftir Christoph Willibald Gluck og Sónata fyrir flautu, víólu og hörpu eftir Claude Debussy. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Líttu inn í hádeginu sem hóf göngu sína haustið 2012 í Salnum undir listrænni stjórn Guðrúnar Birgisdóttur. Þeir standa yfir í hálftíma. Áður en þeir hefjast er tónleikagestum boðið upp á kaffi og te til að ylja sér á.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira