Ég held mínu striki Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 10. janúar 2015 14:00 Bautinn er kunnuglegt kennileiti í miðbæ Akureyrar. „
Mér finnst tilgangslaust að setja á langa ræðu eða skýringar á þeim verkum sem ég sýni hverju sinni. Málverkið lýtur sínum lögmálum og fer sínu fram hvað sem hver segir. Ég held bara mínu striki,“ segir listamaðurinn Kristinn G. Jóhannsson sem opnar sýninguna Senn er sólarlag í Mjólkurbúðinni við Kaupvangsstræti í dag, laugardag, klukkan 14. Kristinn hefur sýnt í Mjólkurbúðinni á sama árstíma undanfarin ár og telur sýninguna nú í raun framhald þess sem hann hefur áður verið með þar. „Ég hef verið að mála og teikna Brekkurnar og speglun þeirra í Pollinum í mörg ár og er enn við sama heygarðshornið,“ segir hann.Kristinn G. jóhannssonSýningin er opin tvær næstu helgar klukkan 14 til 18 og henni lýkur sunnudaginn 25. janúar. Kristinn efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri árið 1954 . Hann sýndi fyrst í Reykjavík árið 1962 í Bogasal Þjóðminjasafnsins og sama ár tók hann fyrsta sinni þátt í Haustsýningu FÍM í Listamannaskálanum. Hann hefur síðan sýnt oft og víða bæði hér á landi og erlendis.
Menning Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira