Ástar- og gleðisöngvar í Dóm kirkjunni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 10. desember 2015 13:30 Hólmfríður er móðursystir Margrétar og þær frænkur hafa oft unnið saman áður. Mynd/Úr einkasafni
Það er þannig að Biblíufélagið er 200 ára á þessu ári og dagskrá tónleikanna tekur mið af því. Efnið tengist allt textum Biblíunnar og tónlistin hefur verið samin við þá. Samt er það ansi fjölbreytilegt og ekkert yfirmáta hátíðlegt allt, þar eru ástarsöngvar og gleðisöngvar og alls konar yrkisefni.“ Þetta segir Hólmfríður Sigurðardóttir píanóleikari um tónleikana Ég hef augu mín til fjallanna í Dómkirkjunni annað kvöld. Ásamt henni kemur Margrét Hannesdóttir sópransöngkona þar fram. „Við vorum beðnar um að spila og syngja á þessum tónleikum og höfum verið að æfa síðustu vikur. Tónlistin er bæði íslensk og erlend og má þar nefna Ljóðaljóð Páls Ísólfssonar, Biblíuljóð Dvoráks, sungin á íslensku og Rejoice úr Messíasi eftir Händel,“ lýsir Hólmfríður. Hún segir þær Margréti oft hafa unnið saman áður enda séu þær frænkur. „Margrét byrjaði að læra söng í Söngskólanum í Reykjavík, þar sem ég starfa sem píanóleikari. Meðal kennara hennar voru Ólöf Kolbrún og Diddú. Síðan fór hún í framhaldsnám til Bandaríkjanna og hefur oft komið fram, bæði hér heima, í Þýskalandi og á Ítalíu,“ lýsir hún. Tónleikarnir eru síðasti viðburður ársins vegna 200 ára afmælis Biblíufélagsins. Þeir hefjast klukkan átta og eru ókeypis fyrir alla.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira