Viðskipti erlent

Hinn kínverski Warren Buffet týndur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ekki er vitað hvar kínverjinn Guo Guanchang, einn ríkasti maður veraldar, er niðurkominn.
Ekki er vitað hvar kínverjinn Guo Guanchang, einn ríkasti maður veraldar, er niðurkominn. Vísir/Getty
Einn ríkasti maður Kína, Guo Guangchang, er týndur. Honum hefur verið líkt við bandaríska fjárfestinn Warren Buffet.

Starfsmönnum Fosun International, fyrirtæki Guanchang, hefur ekki tekist að ná í yfirmann sinn síðan í gærkvöldi. Fosun er eitt stærsta einkafyrirtækið í Kína. Því hefur verið velt upp að Guanchang sé í haldi lögreglu en samkvæmt færslum á kínverskum samfélagsmiðlum sást hann síðast í fylgd lögreglu.

Heimildarmaður BBC innan Fosun segir að líklegt sé að kínversk yfirvöld hafi beðið Guanchang um að aðstoða þau við rannsókn en hann var tengdur við spillingarmál í ágúst síðastliðnum.

Samkvæmt Forbes eru eignir Guanchang, sem stundum er kallaður hinn kínverski Warren Buffet, metnar á um sjö milljarða dollara sem eru um 900 milljarðar íslenskra króna. Hann er í 259. sæti á lista Forbes yfir ríkustu einstaklinga heims og er ellefti ríkasti maður Kína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×