Viðskipti erlent

LeBron James gerir lífstíðar samning við Nike

Sæunn Gísladóttir skrifar
LeBron James, t.v., hefur spilað fyrir Cavaliers frá því í júlí á síðasta ári.
LeBron James, t.v., hefur spilað fyrir Cavaliers frá því í júlí á síðasta ári. Vísir/Getty
Köruboltastjarnan LeBron James hefur skrifað undir lífstíðarsamning við Nike, stærsta íþróttavörumerki heims. 

James hefur verið með samning við Nike frá því árinu 2003 þegar hann skrifaði undir 90 milljón dollara, 11,7 milljarða íslenskra króna, samning við fyrirtækið. Talið er að þetta sé fyrsti lífstíðarsamningurinn sem Nike gerir og enn er óljóst hversu verðmætur samningurinn er. Getgátur eru hins vegar um að hann sé meira en 300 milljón dollara, 39 milljarða íslenskra króna, virði.

James hefur fjórum sinnum verið valinn verðmætasti leikmaður bandarísku körfuknattleiksdeildarinnar, NBA, og hefur unnið tvö gullverðlaun á Ólympíuleikunum. Hann spilaði fyrir Cleveland Cavaliers frá árinu 2003 til 2010 og fór svo til Miami Heat í fjögur ár. Í júli 2014 snéri hann aftur til Cavaliers. 

James er með sína eigin skólínu hjá Nike. McDonalds, Coca-Cola og Samsung eru einnig stuðningsaðilar hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×