Viðskipti erlent

Facebook auðveldar ástarsorg

Sæunn Gísladóttir skrifar
Gwen Stefani og Gavin Rossdale þyrftu lítið að sjá af hvort öðru með nýjungum Facebook.
Gwen Stefani og Gavin Rossdale þyrftu lítið að sjá af hvort öðru með nýjungum Facebook. Vísir/Getty
Facebook er um þessar mundir að prufukeyra nýjung sem leyfir þeim sem hafa nýlega lent í sambandsslitum að minnka það sem þeir sjá frá fyrrverandi, án þess að þurfa að hætta að vera vinur viðkomandi á samfélagsmiðlinum.

Nýjungin „Take a Break" kemur upp eftir að sambandsslit eru gerð opinber á Facebook. Með henni er hægt að takmarka hvað maður sér frá fyrrverandi og hvað fyrrverandi sér frá manni á fréttaveitunni (e. News Feed). Ef valið er að „sjá minna" þá mun fyrrverandi hverfa af fréttaveitunni, auk þess verður manni ekki boðið að setja hann inn á myndir. Hins vegar getur maður áfram séð heimasíðu viðkomandi. 

Maður getur líka valið að takmarka hvað fyrrverandi sér frá manni sjálfum. Með þeirri stillingu sér fyrrverandi ekki nýjar stöðuuppfærslur eða myndir hjá manni. Forsvarsmenn Facebook hafa uppgötvað að mörgum þyki minningar á samfélagsmiðlinum óþægilegar og því má koma í veg fyrir að þær birtist. 

Það má afturkalla allar þessar breytingar þegar sárin af sambandsslitunum eru búin að gróa. Fyrrverandi verður ekki látinn vita að maður hafi sett á þessar stillingar. Í augnablikinu er verið að prufukeyra þetta í Bandaríkjunum en búist er við að notendur víða fái þennan möguleika innan skamms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×