Í tilefni af útgáfu Uncharted 4 í mars á næsta ári, uppfærðu Bluepoint games gömlu leikina þrjá fyrir PS4 og Naughty Dog gáfu þá út í einu safni. Leikirnir hafa verið uppfærðir að miklu leyti og líta mun betur út, eins og sjá má hér að neðan.

Fyrsti leikurinn; Drake´s Fortune er nú orðinn átta ára gamall og það sést á honum. Graffíkin lítur að vísu ágætlega út, en hreyfingar og skotkerfi ekki, þrátt fyrir að skotkerfið hafi verið bætt. Þá gerist það leiðinlega oft, þegar Drake þarf að klífa kletta og byggingar, að sjónarhornið hjálpar ekki til. Þá vill það gerast að maður hoppi fram af klettum og láti lífið á annan máta.
Bæði Uncharted 2 og 3 virðast ekki eiga við þessi vandamál að stríða. Stýrikerfið virkar mun betur og bardagar virka bæði skemmtilegri og náttúrulegri. Það er að auðveldara er að miða og jafnvel að fara í skjól.
Önnur nýjung er að nú er búið að bæta við svokölluðu Speed Run. Þar geta spilendur keppst við að klára borð á sem skemmstum tíma og borið tíma sína saman við hve lengi vinir eru að klára borðin. Þá er einnig hægt að bera annars konar tölfræði saman við tölfræði vina. Það er hve marga óvini þú hefur fellt og slíkt.
Uncharted safnið er stórgóður sögupakki sem býður upp á mikla skemmtun. Það sem Uncharted serían gerir alveg frábærlega er að segja skemmtilega sögu mjög áhugaverðs karakters. Nathan Drake er frábær og leikirnir eru allir stórskemmtilegir.