Nokian í fyrsta sæti í dekkjakönnun FÍB Finnur Thorlacius skrifar 5. nóvember 2015 15:23 Nokian Hakkapeliitta dekk.
Nokian dekk lentu í fyrsta sæti bæði í flokki negldra og ónegldra dekkja í dekkjakönnun FÍB fyrir árið 2015/2016. Nokian eru margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem uppfylla gæðakröfur ESB. Könnunin náði til vetrarhjólbarða sem sérstaklega eru gerðir til aksturs í vetrarríki norðlægra slóða. Eftirfarandi atriði voru prófuð: hemlun, hröðun, aksturseiginleikar, aksturstilfinning, rásfesta og núningsmótstaða.Gullverðlaunahafar NokianNokian Hakkapeliitta 8 var valið BESTA NEGLDA VETRARDEKKIÐ. Í umsögn um dekkið segir meðal annars að dekkið fékk hæstu einkunn í öllum prófunarþáttum á ís. Hemlunarvegalengd er stutt og beygjugrip er með ágætum. Gripið í snjó er einnig það besta.Nokian Hakkapeliitta R2 var valið BESTA ÓNEGLDA VETRARDEKKIÐ. Í umsögn um dekkið segir meðal annars að hemlun sé sú besta sem og hröðunar- og beygjugrip.Dekk eru af ólíkum gæðum Nokian dekk eru ein öruggustu dekk sem völ er á. Nokian sérhæfir sig í akstursaðstæðum eins og finnast hér á Íslandi. „Öryggi allra farþega bílsins veltur að miklu leyti á gæðum þeirra dekkja sem valin eru. Því er mikilvægt að kynna sér þau dekk sem eru í boði á markaðnum, því þau eru mjög ólík. Við mælum alltaf með gæðadekkjum við alla okkar viðskiptavini einfaldlega af því að maður á ekki að spara þegar kemur að umferðaröryggi.“ segir Sigurjón Árni Ólafsson, framkvæmdarstjóri MAX1.Dekkin undir bílinn skipta máliAfar mikilvægt er að velja rétt dekk undir bílinn. Dekkin sem þú setur undir bílinn skipta máli ekki bara upp á öryggi heldur einnig upp á eyðslu og mengun. Öll viðurkennd dekk fylgja ákveðnum staðli þegar kemur að merkingum á stærðum dekkja, burðargetu, hraðamörkum og fleiri þáttum. Starfsmenn MAX1 veita ráðgjöf um val á réttu dekkjunum en að auki er hægt að finna réttu dekkin í dekkjaleitarvélinni á heimasíðu MAX1 og þar að auki ýmsar gagnlegar upplýsingar sem skiptir máli við val á réttu dekkjunum.
Mest lesið Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Innlent Borgarstjóri fór með rangt mál Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Innlent Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Innlent Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Innlent Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Innlent „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Innlent Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Innlent „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Innlent Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Innlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira