Þá kom þessi magnaði óperuhljómur fram Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 20. október 2015 10:15 Hjónin Julian Michael Hewlett kórstjóri og Kristín R. Sigurðardóttir söngkona. Fréttablaðið/GVA
Kvennasönghópurinn Boudoir og karlakórinn Mosfellsbræður hafa tekið höndum saman og myndað Óperukór Mosfellsbæjar. „Við munum óhrædd takast á við spennandi verkefni úr óperuheiminum og fleiri geirum tónlistarinnar,“ segir Kristín R. Sigurðardóttir söngkona sem bæði tilheyrir Boudoir og hinum nýja óperukór. Eiginmaður hennar, Julian M. Hewlett, er stofnandi og stjórnandi allra kóranna þriggja. Hann hefur starfað hér á landi í rúma tvo áratugi sem píanóleikari, tónlistarkennari, kórstjóri, organisti og tónskáld. „Boudoir er kór með faglærðum konum og félagar í Mosfellsbræðrum hafa margir verið í námi og eru þjálfaðir í kórsöng, enda með gríðargóðar raddir. Þegar kórunum var steypt saman kom út þessi flotti, magnaði óperuhljómur,“ lýsir Kristín. Félagar í nýja kórnum eru 35, þar af nokkrir sem standa utan hinna kóranna og enn er pláss fyrir fleiri að sögn Kristínar. Fyrstu formlegu tónleikar Óperukórs Mosfellsbæjar verða haldnir fyrir jólin. Þar verða meðal annars sungnir kórar úr Messíasi eftir Händel og jólakantata eftir kórstjórann.
Menning Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira