Íslenskir tónar í bandarísku kokkadrama Bradley Cooper Guðrún Ansnes skrifar 22. október 2015 07:30 Ólafur og Arnór leiddu saman hesta sína og hefur sá ávöxtur sannarlega vakið athygli í Hollywood hæðum. mynd/aðsend „
Við fáum bara email þar sem okkur er sagt frá hverjir leika í myndinni, hvert atriðið er, hvenær lagið er spilað og afhverju. Þessu er skellt í fimm eða sex setningar og við segjum já eða nei,“ segir Arnór Dan, söngvari en lag þeirra Ólafs Arnalds kemur fyrir á tveimur stöðum í kvikmyndinni, sem frumsýnd verður hér á landi í næstu viku. Um ræðir lagið Old Skin, af plötunni For Now I Am Winter, sem Ólafur sendi frá sér árið 2013. Er lagið spilað tvisvar í myndinni og á svokölluð soundtracki. „Við sögðum strax já við þessu, enda frekar hlutlaus Bandarísk stjörnumprýdd kvikmynd, en engin pólitík eða eitthvað sem við viljum ekki tengja okkur við,“ útskýrir Arnór hæstánægður. Segir hann upphæðirnar sem fáist fyrir að eiga lag í stórum Hollywood myndum ekki aðalatriðið. „Ég spái í raun ekki mikið í því, þar sem upphæðin sem kemur fyrir í tölvupóstinum deilist svo niður í ótal áttir, og þegar hún á endanum kemur til mín, þá lít ég á þetta sem algjöran bónus og geri ekki sérstaklega ráð fyrir honunm. Það að koma tónlistinni sinni áfram á svona viðamikinn snertiflöt, eru raunverulegu launin."Adan Jones hefur átt betri daga, líkt og Cooper.Ekki er þetta í fyrsta skipti sem músíkakst samstarf þeirra Arnórs og Ólafs ratar í stórmynd, því í janúar á þessu ári mátti heyra lagið A Stutter, sem einmitt kom út af sömu plötu og lagið í Burnt, óma í afar dramatískri senu í Taken þrjú. „Ég er býsna ánægður með að nú sé senan aðeins öðruvísi, en lagið er spilað undir þegar persóna Cooper er að rísa upp úr öskustónni,“ segir Arnór léttur í lund. En hvernig stendur á að tónlist þeirra félaga rati svo iðulega í hendurnar á risa kvikmyndaframleiðendum segist Arnór seint stæra sig af að koma því í kring. „Ég hreinlega veit það ekki, stundum ramba leikstjórarnir á þetta en svo er Óli náttúrulega mjög duglegur við að koma tónlistinni að,“ bendir Arnór hógvær á að vanda.Cooper í ágætis málum mitt á milli meðleikkvenna sinna Uma Thurman og Siena Miller, en hann hefur löngum þótt álitilegur og oftar en ekki á meðal heitustu piparsveina Hollywood.Má með sanni segja að vart verði þverfótað fyrir stórstjörnum á hvíta tjaldinu þegar Burnt verður sýnd. Með aðalhlutverk fara Bradley Cooper, Sienna Miller, Daniel Brühl, Omar Sy og þarna munu slæðast með engar aðrar en Emma Thompson og Uma Thurman. Leikstjórn er í höndum John Vells. Fjallar myndin í grófum dráttum um hrokafullan kokk, Adam Jones, sem hefur átt góðu gengi að faga, allt þar til hann gerir það ekki lengur og allt fer niður á við. Hafandi þrjár Michelin stjörnur á bakinu reynir Jones að koma undir sig löppunum og fer aftur á ról með nýjan veitingastað. Má gera ráð fyrir að býsna spennandi atburðarás í framhaldinu. Hafa gagnrýnendur gert að gamni sínu og sagt að söguþráðurinn eigi sumpart margt sameiginlegt með ferli Cooper sé horft yfir árið, en líkt og kvikmyndaunendur vita var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína í stórmyndinni American Sniper. Hann hreppti þó ekki hnossið og næsta sem bíógestir sáu var kvikmyndin Aloha. Sú ræma fékk sannkallaða falleinkun, og náði hæst 5.5 á IMDB, að ónefndu aðkastinu sem framleiðendur myndarinnar urðu fyrir, þar sem innfæddir voru hlunnfarnir með eindæmum við gerð myndarinnar. Nú segja fróðir menn hinsvegar að Cooper gæti átt viðreisnar von, á nákvæmlega sama tíma og Jones, hönd í hönd við fagra tóna Old Skin. Verður myndin frumsýnd þann 30.október.
Óskarinn Tónlist Tengdar fréttir Friðrik Dór, Ólafur Arnalds og Arnar Dan opna frönskustað Eini rétturinn á matseðli Reykjavík Chips verða franskar kartöflur. 22. apríl 2015 10:27 Frumsýnt á Vísi: Myndband við lagið Wait For Me með Agent Fresco Hljómsveitin Agent Fresco sendir frá sér plötuna, Destrier þann 7. ágúst næstkomandi. 24. júlí 2015 14:00 Agent Fresco í fyrsta sinn til Bandaríkjanna Nýjasta plata sveitarinnar, Destrier, fór í fyrsta sæti yfir söluhæstu plötur vikunnar. 14. ágúst 2015 08:00 Hafþór Júlíus glímir í nýju myndbandi Ólafs Arnalds Fyrsta smáskífa plötunnar The Chopin Project er komin út. 19. febrúar 2015 10:51 Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Lífið samstarf Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Fleiri fréttir Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Sjá meira
Friðrik Dór, Ólafur Arnalds og Arnar Dan opna frönskustað Eini rétturinn á matseðli Reykjavík Chips verða franskar kartöflur. 22. apríl 2015 10:27
Frumsýnt á Vísi: Myndband við lagið Wait For Me með Agent Fresco Hljómsveitin Agent Fresco sendir frá sér plötuna, Destrier þann 7. ágúst næstkomandi. 24. júlí 2015 14:00
Agent Fresco í fyrsta sinn til Bandaríkjanna Nýjasta plata sveitarinnar, Destrier, fór í fyrsta sæti yfir söluhæstu plötur vikunnar. 14. ágúst 2015 08:00
Hafþór Júlíus glímir í nýju myndbandi Ólafs Arnalds Fyrsta smáskífa plötunnar The Chopin Project er komin út. 19. febrúar 2015 10:51