Tónlist

Sjáðu Of Monsters and Men flytja Empire hjá Ellen

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hvað ætli OMAM hafi þurft að flytja Empire oft á undanförnu ári?
Hvað ætli OMAM hafi þurft að flytja Empire oft á undanförnu ári? mynd/ellentube
Hljómsveitin Of Monsters and Men kom fram í spjallþætti Ellen DeGeneres í kvöld en þar flutti hún lag sitt Empire af plötunni Beneath the Skin sem kom út í sumar. Frammistöðu þeirra má sjá hér að neðan.

Spjallþátturinn er einn sá vinsælasti í heiminum en hann hóf göngu sína árið 2003 og þáttaröðin sem nú er sýnd í sjónvarpi er sú þrettánda.

Strangri tónleikaferð sveitarinnar um Bandaríkin lauk fyrir skemmstu en sveitin hefur meira og minna verið á ferðalagi um heiminn frá því í vor. Platan sjálf fékk ágætar viðtökur og var um stund í þriðja sæti á bandaríska Billboard Top 200 listanum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×