Samfarir okkar Dollíar Parton Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 27. október 2015 07:00 Enginn skyldi vefengja Paulo Coelho þegar hann segir að þú feykir ósk þinni til alheimsins sem síðan reynir að láta hana rætast. Vandinn er hins vegar sá að við erum orðin svo áhrifagjörn að við megum ekki sjá eina bíómynd þá rignir alls konar hégómlegum óskum yfir alheiminn. Hann hefur því varla undan. Þá fer hann að ruglast svo að sá sem vildi verða dýralæknir verður kannski bara fjármálaráðherra. Þetta gengur ekki því alheimurinn má ekki bara einhenda sér í að uppfylla óskir manna um leið og honum berst erindið. Hann verður að vinna smá undirbúningsvinnu fyrst. Ímyndið ykkur til dæmis ef hann myndi drífa sig í að láta gamla drauminn hans Guðmundar Steingrímssonar rætast, þá fengi Framsóknarflokkurinn nýjan formann á morgun. Eins og gefur að skilja er vitund Guðmundar upptekin af því að koma í veg fyrir afgreiðslu þessa máls og kemst því ekki til þess að óska sér að nýju. Og á meðan hrynur fylgi Bjartrar framtíðar. Þráinn Bertelsson lenti líka illa í því þegar búið var að láta kvikmynda- og rithöfundardrauma hans rætast. Þá kom alheimurinn allt í einu auga á eldgamalt erindi frá listamanninum sem hann hafði líklega sent inn í hálfkæringi eftir að hafa hlustað á Einar Olgeirsson í ham. Málið fór í gegn og Þráinn fór á þing. Ég hef miklar áhyggjur af gömlum óskum eins og þessum. Ég lagði nefnilega hart að alheiminum að láta þær rætast á sínum tíma. Sumar óskirnar voru meira að segja mjög vanhugsaðar og hirti ég ekki um hversu erfitt yrði fyrir alheiminn að uppfylla þær. En vandinn er sá að honum tekst það venjulega fyrr eða síðar. Kannski á maður ekkert að vera að stressa sig á þessu en mig grunar þó sterklega að samfarir okkar Dollíar Parton verði ekki eins ánægjulegar og efni stóðu til. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason Skoðun Íþróttir eru lykilinn Willum Þór Þórsson Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson Skoðun Að eiga sæti við borðið Grímur Grímsson Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen Skoðun
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun